Bankar framtíðarinnar verða EKKI í einkaeign!
Einu sinni var það framtíðarspá, enn í dag sorgleg staðreynd að fyrirtæki stjórna ríkisstjórnum um allan hinn vestræna heim í gegnum fjármagnið og bankanna. Til hver er verið að kjósa fólk á Alþingi sem styður banka í einkaeign og sem telja lýðnum í trú um að það sé lýðlýðræði í landinu.?
Sumir þingmenn eru hreint af heiðarlegir, enn haldnir þessari botnlausu blindu aö ALLT verði að vera í einkaeign. Málið er að við þurfum ekki bankaeigendur yfirleitt og höfum aldrei þurft. Það er ekkert mál fyrir fólk að tengja fram hjá þessum skrýmslum og þjóðfélagsmeinum og búa til nýtt kerfi frá grunni.
Bankar hafa sýnt sig vera furðuleg stofnun. Fólki er talið í trú um það að nauðsynegt sé að bankar séu í einkaeign. Þetta er svona hagfræði sem hefur aldrei staðist nein rök, nema rök græðginar. Bankar þurfa að vera þjónustustofnun og ekki spilavíti og ræktunarstöð fyrir spillt og sjúkt hugarfar.
Þannig er þetta í bönkum á Íslandi og reyndar um allan heim. Með einmitt sömu vandamálunum. Ekki bara að bankarnir ungi út hugarfarslega stórbrengluðu fólki, þá fylgir bankaeign tegund af "gullæði" sem aftengir eigendum og bónusstrákum öllum raunveruleika og tengingu við venjulegt líf.
Ég kýs þann flokk sem ætlar að hafa alla banka í Ríkiseign. Verði að kaupa bankanna af allskonar kröfuhöfum, þá er betra að gera það í eitt skipti fyrir öll og aldrei aftur. Það er engin busness að láta almenning kaupa sömu bankanna aftur og aftur eins og hefur verið gert hingað til.
Eðli banka og lánastofnanna í einkaeign er að soga til sín allt fjármagn á endanum og dreifa aldrei peningum svo efnahagsblóðrásinn streymi eðlilega um þjóðarlíkaman. Einkareknir bankar er pottþétt ávísun á efnahagslegt hjartaáfall. Hagfræðingar, efnahagsráðgjafar og aðrir eiga ekki að oppna munnin í nokkur ár og fara að læra upp á nýtt. Eða finna sér eitthvað annað að gera....
|
Stjórnarkreppa í augsýn? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 24.1.2012 | 06:30 (breytt kl. 06:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=nkIIBnIuXHM
Hernaður er þrælskipulögð geggjun af verstu sort og pólitískir valdafíklar frossa í þessu allt árið um allan heim. Oftast þykir það fínt að vera hermaður og í mörgum löndum er það skylda. Mikið er bent á hetjudáðir í hernaði enn minna á grimdina og viðurstyggðina sem þessu fylgir.
Og hernaður er gerður að pólitík svo hægt sé að gera þetta lögmætt, alla vega á páppírunum. Alþjóðlegt leikrit er í gangi sem gengur út á að fylgja "alþjóðareglum" sem er að mestu leyti brandari og gert til að ganga í augun á kjósendum sýnum. Að vitskertir hermenn pissi yfir lík er bara merkilegt vegna þess að það náðist mynd af því.
Eftir að hafa hlustað á endalausa frásagnir f.v. hermanna árum saman er ég sannfærður að engin bíómynd, heimildamynd eða frásögn í bók getur nokkurtíma lýst viðbjóðnum sem hernaði fylgir og hvað þetta ástand gerir við hermennina sjálfa og venjulegt fólk sem lifir við þetta. Sumt alla æfi.
Blaðamenn er ekki síðri að hjálpa til með sinn skerf. Þess hryllilegri fréttir sem hægt er að ná á vígstöðvunum þess betri eru blaðamennirnir. Alla vega innanveggja og er oft mikil gloria fylgjandi þessum fréttamönnum. Fjölmiðlar eru þó "tvíeggjað sverð" í hernaði, enhver jákvæð áhrif hafa þeir, enn líka mjög neikvæð.
Árangurinn af hernaði og afleiðingar gætir oft í hugum fólks í ættliði. Ömurleiki mannlegs eðli leysist úr læðingi og þegar hermaður kemur hem eftir "vel unnin störf" mætir honum allt annar veruleiki. Meira eða minna veruleikafyrtir, sperngjandi alla skala í mælingum sálfræðinga og geðlækna dregst allt stærri hópur inn í eyturlyfjaneyslu og þunga glæpi þegar þeir koma heim. Þeir sem komas heim aftur yfirleitt.
Og þetta sjónarspil er allt um peninga þegar það er skoðað í botnin. USA, Evrópa og kanski EuroAsia berjast um markaðinn. Olia skiptir öllu máli og stoppar hún, stoppar matvæladreifing og fólk mun deyja hraðar en í nokkru stríði. Pólitíkusar virðast hafa mestan áhuga á að halda áfram hernaðarbrölti á kostnað fólksins sem hefur engan áhuga á þessum pólitíska leik.
Ísland tekur óbeinan þátt í þessu með að breyta 1 tonni af diesel olíu í eitt tonn af fiski, á landinu sem er frægt fyrir ódýra orku. Eitthvað mikið er að í skipulagningu á landinu fyrst þessu er ekki breytt.
Alla vega þá er hernaður allur mesta bull, peningaleikur valdafíkla og geggjaðra yfirvalda um allan heim. Það er merkilegt hvernig fársjúkt fólk kemst til valda í hverju landinu á fætur öðru. Það er eithhvað bogið við að fólk verði að skjóta og sprengja skoðanir sýnar á lífinnu inn í hausinn á hvor öðrum. Það er engin dæmi um að hernaður hafi leitt neitt gott af sér, fyrir neitt land neinsstaðar í allri mannkynssögunni.
Enn stríð hefur gert margt land og einstaklinga ríka. Og það virðist alltaf vera aðalmálið allstaðar að geta grætt sem mest á stríðstímum. Efnahagur margra landa myndi hrynja á örstuttum tíma ef allt hernaðarbrölt hætti snögglega. Mannkynið er orðið háð því að það séu stríð og hernaðarátök um alla jörðina....
|
Myndskeiðið var ástæða morðanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 23.1.2012 | 22:16 (breytt 24.1.2012 kl. 01:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mórall í Svíþjóð líkist ekkert því sem er kallaður mórall á Íslandi. Munurinn er svo mikill að eiginlega þarf að gera nýtt hugtak fyrir bæði löndin. Juholt skilaði inn kvittunum á útlögðum kostnaði til vinnuveitanda sinn sem hann átti að standa fyrir sjálfur. Svo sagði hann ekki rétt frá í sambandi við skráningu sambýliskonu sinnar og fékk því hærri leigustyrk en hann átti rétt á.
Það er engin möguleiki á Íslandi að neinn hefði amast við svona tittlingaskít fyrir pólitíkus í sömu stöðu. Þessi Juholt er eins og margir pólitikusar, ekkert sérlega vel gefin, enn hefur afburða góðan talanda. Hann hefur viðurkennt að hafa fengið of mikið borgað, enn segir að hann hafi ekki vitað að lögin hafi verið svona.
Hann greiddi svo strax allt tillbaka og fór svo í vinnunna. Hann vinnur við að smíða lögin...
|
Búist við að Juholt segi af sér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 21.1.2012 | 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Að nota aliþingi í svona ljótan leik eins og að reyna að draga einu ákæruna til baka sem snýst um ráðherraábyrgð, er alveg skelfilegt. Það hefði verið eðlilegra ef það væri aðallega verið rltt hvort ætti að bæta fleiri ákærum við og prófa mál fleiri ráðherra.
Alþingi er orðin eins og saumaklúbbur fyrir viðræður sem ekkert skipta máli. Líklegast í fursta skipti sem ég er sammála Steingrími í einhverju máli. Bjarni bullari kom umræðunni af stað og nú á að nota kaosið sem hann veldur til að frelsa Geir Haarde. Enn frá hverju? Það er ekki eins og það sé búið að dæma manninn...
Meira ruglið sem þetta Alþingi er orðið...
|
Næstversta niðurstaðan |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 20.1.2012 | 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég óska Þórarinni Birni Steinssyni til hamingju með sigurinn og Hæstarétti fyrir "túlkun" sína á lögunum. Þetta var dómur sem symboliserar siðferði fyrirtækja og að sjálfsögðu Hæstaréttar.
Og kanski er það sjálfur Hæstaréttur sem kemur í veg fyrir framfart psykopatiskar hegðunar í stórfyrirtækjum gagnvart vinnufólki eins og Norðuráll gerir sig sekan um í þessu stórmerkilega máli sem aldrei átti að berða neitt mál. þeir geta ekkert beitt fyrir sig að tryggingarfélagið viðurkenndi þetta ekki. Þeir áttu að stefna tryggingarfélaginu sjálfir fyrir hönd mannsins. Í staðin þurfti hann að sækja réttindi sín sjálfur.
Tryggingafélög fara eftir lögum og nota lögfræðinga sýna óspart til að manipulera hugtök lögfræðinnar út í það óendanlega. Lögin og túlkun lögmanna á þeim eru eins og sprengjur í máli og tali og uppfyllir þetta allar kröfur sem gerðar eru til að þeir fái nafnbótina Psykopatisk hegðun.
Og það er ekkert sagt til að skammast út í neinn. Þetta er bara því miður þróuninn í svipuðum málum. Það er "hefð" sem á sér stað og á sér langa sögu á Íslandi og víða um heim. Og þeir vinna mörg málin á að þreyta fólk svo það gefist ekki upp í eltingaleik sínum við sjálfsögð réttindi sín.
Málið er að tryggingar eru svo mikilvægar að þær ættu ALDREI að vera í höndum einkaaðila. Og til að valda ekki misskilningi þá er ég fyrir einkaframtakið, var glerharður sjálfstæðismaður þangað til glæpamennskan þar í flokki gekk of langt. Á sama hátt eiga bankar ALDREI að vera í höndum einkaaðila sem er annað mál, enn smat svipað eftir því hvernig menn vilja líta á það.
Héraðsdómur stóðst ekki þetta merkilega siðfræðipróf. Þeir ættu allir að fara í tilfinningalega þerapíu og freista þess að breyta sér í manneskjur aftur. Það er nefnlega þannig að manneskja hættir að vera manneskja það bil sem empati eiginleikinn hættir að vera til. Enn fólk sem ekki hefur empati, viðurkennir ekki þetta. Þeir nefnilega eru allra manna síðastir til að skilja þetta. Þess vegna er þessi þróun svo alvarleg.
Allt málið er svo sérstakt að vonandi semur Þórarinn ekki af sér. Viðbrögð Norðuráls eru klassískt merki um að forráðamenn þeirra eru haldnir þessum Psykopatisku eiginleikum sem oft vaxa hjá forstjórum og yfirmönnum fyrirtækja um allan heim. Þetta vandamál er gífurlegt og uppáhalds vörn Psykopata stórfyrirtækja eru einmitt lögin sjálf. Þessi yfirlýsing þeirra í framhaldi af niðurstöðunni veldur þeim engum áhyggjum nema "hræðslan við álit annara" og áliti fólks á fyrirtækinu.
Hlutverk Héraðsdóms í málinu er annaðhvort misstök, byrjun á þessari psykopatisku þróun sem oft á sér stað í lögfræðinni og því miður létu þeir glepjast af harðsvíruðum og ísköldum lögmönnum tryggingafélagssins.
Ég lánaði bílinn minni erlendis bróður konunnar minnar. Svo illa vildi til að tvær ungar skólasystur á sama mótorhjólinu óku yfir á vitlausan vegarhelming og skullu framan á biðreiðinni. Ég var með fulla trygginu enn þær voru ekki með hjálma sem hefði ekkert hjálpað til í þessu slysi. Tryggingarfélagið notaði þetta, gerðu við bílinn minn, enn fátækar fjölskyldur stúlknanna fengu ekkert.
Ég greiddi báðar jarðarfarirnar og bauð starfsmönnum tryggingarfélagssins í heimsókn til fjölskyldna látnu stúlknanna. Þeir þáðu það að sjálfsögu ekki. Faðir annarar stúlkunnar var óvinnufær mánuðum saman.
Þetta óeðli tryggingarfélaga hefur fengið að þróast ár frá ári. Lögfræðin og lögin líkjast allt meira hvernig hryðjuverkamenn nota Kóranin sér til framdráttar. Með leyfi frá Guði sínum koma þér fyrir sprengjum sínum til að slasa og skaða sem mest. Enda eru lögin að breytast í nýtt trúarsýstem sem slær út Biblíu og Kóran sem sýstem sem stýrir fólki.
Án allrar samvisku og gjörsneiddir öllu mannlegu berjast hryðjuberkamenn í nafni "réttlætis" án þess að hafa nokkurt vit til þess. Ef margir ráðamenn tryggingafélaga færu í Empati mælingu, EQ, stæðust þeir ekki prófið. Empati er alls ekki eitthvað fyrirbæri svo fólk sé á bólakafi í að vorkenna hvort öðru. Enn það hélt einn tryggingarmaðurinn sem ég átti samskipti við, enda sjálfur gjörsamlega aftengdur öllu mannlegu sem mætti alveg kalla sem sálfræðilegan hryðjuverkamann. Það eru ekki alltaf peningar sem stjórna þessum ljóta leik. Frekar þessi kuldi, löngun til að skaða, vinna leik þar sem mannlegt líf er í veði.
Og besta sönnuninn kom lögmaðurinn um árið með þegar hann sagði einhvernvegin svona í ekkert ósvipuðu máli: "Þetta bull byggir bara á tilfinningum!" "Hver heldur þú að hlusti á svona kjaftæði!" Og um það snýst málið. Þessir menn haga sér eins og þeir séu með tölvuheila í stað mannlegs heila og það er ekki einu sinni fyndið. Þetta er hroðalegt fólk og um allt í samfélaginu.
Lögfræðina þarf að endurskoða. Til hvers er hún og endurskoða hvernig á að nota hana. Á að leyfa það að réttarsalir landsins séu notaðir í fáranlega leiki eða til þess að vanþroskaðir lögmenn landsins, forsvarsmenn fyrirtækja og tryggingarfyrirtæki á Íslandi spili lögfræðiskák þar við hvern annan?
Þeir gera það að hluta til að vinna peninga af fólki sem þarf á þeim að halda vegna slyss, og á hinn bógin til að ganga í augun á skjólstæðing sýnum, þar sem taktík eins og að teygja tíman er hluti af leiknum. Spila spilið og vinna leikinn án tillits til þess hvað sé í veði.
Í svona máli þarf nefnilega að leggjast mjög lágt í siðferði til að láta það eftir sér að stíga inn í réttarsal og reyna kraftanna og stórskaða mann sem þegar er slaðaður. Ég ætla ekki að lesa rökin í þessu máli. Ég kann þau. Hef lesið þau, unnið við að hjálpa þessu fólki sem hefur verið stigið á, trampað yfir og þeir stórslasaðir á sálinni eftir meðferð lögmanna og því miður hafa dómarar tekið þátt í þessu eða látið platas.
Menn t.d. sparka ekki í liggjandi fólk, berja ekki menn í hjólastólum, fólki er ekki hent út af sjúkrahúsi í miðri skurðaðgerð né flugvél á miðri leið. Enn ef lögin okkar slysuðust til að gefa tækifæri á svoleiðis túlkun á lögunum, finnst alltaf nóg af psykopötum í lögfræðistéttinni sem myndi nota svoleiðis í alvöru. Þessi þróun er befnilega komin í gang erlendis.
Smábörnum niður í átta ára er hent út úr lestum af fullorðnum lestarþjónum þar sem eldra syskini sat á klósettinu með lestarmiðanna. SOS þjónustan sendi ekki sjúkrabíl þar sem það var sá veiki sem hringdi. Hann talaði svo "skringilega" að hún sendi enga. Maðurinn kafnaði heima hjá sér. Viðbrögðin eru alltaf þau sömu: "Ég var bara að fylgja reglunum".
Og fólk deyr vegna þessara "duglegu" lögmanna. Og þeim er bent á það og þeir gerðu ekkert rangt. Það hvort það var lögunum að kenna eða þeim sem túlkuðu lögin, læt ég öðrum eftir að dæma um.
Við þurfu að endurskoða lögin, einfalda þau og gera þau manneskjuleg. Lögin draga á eftir sér g0mul hugtök, sum skelfileg þannig að það er bara fyrir prófessora í lögfræði að skilja.
Ef lög eru ekki nógu skýr til þess að meðalgreindur maður skilji þau, á að henda þeim og smíða ný. Ef Hæstiréttur hefði ekki gripið inn og dæmt svona í málinu, hefðu þar með mátt gera réttarkerfið að tölvuprógrammi þar sem lög og reglur yrðu mötuð inn í og svo myndi talva spýta úr sér niðurstöðunni...
Réttarkerfið verður aldrei fullkomnara enn hugarfar þess sem stjórnar því. Það skiptir engu máli hversu góður hann eða hún er í sjálfum lögunum. Það geta allir lært sem hafa áhuga.
|
Ólýsanleg tilfinning |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 20.1.2012 | 04:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sjómenn kannast sjálfsagt við hvernig smygluppgjör fór fram á fiskibátum og stundum á togurum sem voru að selja fisk erlendis. Á minni bátum tók öll áhöfnin þátt og áttu menn misjafnlega mikið í "góssinu". Skipstjórinn mest því hann átti mestan peninginn og svo var að finna einhvern sem tók á sig "sökina" ef illa skildi takast. Ef tollgæslan fyndi þetta.
Þessi eini sem var búið að semja fyrirfram við gaf sig fram sem eigandi. Tollgæslan, lögregla sem sá um yfirheyrslunar, lögfræðingur og saksóknari og dómararnir. Allir vissu um að allt málið var bara leikrit. Leikrit sem er orðin kúltúr á Íslandi í dag, leikin á þingpöllum, bönkum, ráðuneytum, opinberum stofnunum oh bæjarfélögum.
Nú kemur þessi þessi Guðfríður og reynir að eyðileggja rótgróinn kúltúr alþingismanna eins og kokkurinn á togaranum í þýskalandi sem var alltaf að reyna að láta okkur draga mannakorn þegar smyglið fór í undirbúning. Virkilegur félagsskítur sem aldrei vildi vera með í neinu smygli... óþolandi fólk. Einhver kona sem trúir á heiðarleika á Alþingi eða í Stjórnmálum yfirleitt byrjar nú að verja Geir Haarde og segja að allir séu sekir!
Á nú að fara að dreifa ábyrginni yfir á alla áhöfninna? Hvaða rugl er þetta? Er ekki nóg að steikja einn, dæma og niðurlægja opinberlega og halda áfram með alþingisleikritið. Hver heldur hún að eigi að stjórna þessu landi ef allir óheiðarlegir eru teknir úr umferð?
Kanski hún ein? Það þarf að stoppa svona konu af í hvelli svo spilling geti fengið að vaxa í friði....
|
Samtrygging stjórnmálamanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 20.1.2012 | 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það voru bara nokkur þúsund manns um borð í skipinu sem strandaði hér á dögunum. Bara nokkrir dóu og restin slapp með skrekkinn. Skipstjórinn fór af skipinu án þess að sjá til þess að allir kæmust frá borði. Geir Haarde hefur fengið laun í mörg ár sem ábyrgur fyrir heilli þjóð.
Hann er aumingi sem á bara að standa fyrir sínu máli. Verði hann dæmdur verður það kanski ekki eins spennandi að vera forsætisráðherra og hylma yfir stærstu glæpum sem hafa nokkurtíma verið framdir í sögu landsins.
Hvort Geir Haarde sé gangster trúi ég ekki. Þeir aftur á móti notuðu hann og plötuðu hann eins og þurs, aftur og aftur. Þess vegna á að prófa þetta fyrir rétti. Hann ætti að vera skýrari í máli líka. Geir er sérfræðingur að tala mikið án þess að nokkurtíma komast að kjarnanum í neinu máli. Lýsir þeim eiginleika vel í viðtali sínu við Wasington Post.
|
Andstæðingar og óvinir nota réttarkerfið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 18.1.2012 | 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þessi Vaðlaheiðargöng eru symból fyrir hugarfar aumingjanna sem stjórna þessu landi og áttu stóran þátt í að kollvarpa því. Og núna vill fólk með nákvæmlega sama eitraða hugarfar halda ruglinu áfram.
Risaverkefni og bull í efnahagslegum rugludöllum landsins þarf að stoppa. Það bítur engin á agnið vonandi í Ríkisstjórn Íslands við svona fáránlegt tilboð sveitastjórnarinnar.
Verkefnið ber keim af mikilmennskubrjálæði, efnahagslegri óráðssíu, eltingaleik fárra forríkra og eigingjrnra verktaka sem vilja mata krókinn og gefa skít í allt og alla.
Hvað með að byggja plexiglerhús yfir ALLA REYKJAVÍK í staðinn með gerfisólskini. Það er hægt að láta það borga sig með að reikna sparnað í snjóruðningi og upphitun húsa 150 ár fram í tíman og halda því síðan fram að plexigleþakið yfir h0fuðborgina sé eiginlega ókeypis.
Þessi reikningur sem notaður máli gangnanna til rökstuðnings kemur frá ómerkilegum ranhugmyndaheimi þeim sem allt of stór hluti hagfræðinga og reiknimeistara landsins lifir í. Ríkið á ekki að koma nálægt svona bull og þarf að setja lög um ráðstöfunarrétt Ríkistjórna um sameiginlega peningaeign landsmanna.
Það á ekki að vera það sama að þegar menn eru kosnir til trúnarstarfa sem ráðherrar og alþingismenn, að þeir hafi leyfi til að fara á botnlaust fjármálafyllerí um leið og þeir fá lyklanna af skattkistunni. Þessi göng er prófsteinn á því hvort yfirvöldum sé alvara í endurreisn landsins eða ekki...
|
Vilja auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Mannréttindi | 18.1.2012 | 17:26 (breytt 20.1.2012 kl. 16:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
".. og enn gefur hann blessaður!..." var sagt í gríni hér áður fyrr um presta sem gáfu dauðvona síðustu smurningu og engin þrætti við heilagan prestinn á þeim tíma. Þannig komst kirkjan á Íslandi yfir ótrúleg auðæfi í krafti trúar fólks á þetta afturhaldsama, ómerkilega bákn sem enn þrífst í þjóðfélaginu og fólk tekur alvarlega.
Það er ekkert alvarlegt með kirkjuna lengur. Hún er eins og kóngurinn í ýmsum löndum, safngripur með allt færri áhángendur, óþarfa stofnun sem ekki nægir að fá sína 6 milljarða í ölmusu svo hún megi lifa lengur.
Peningarnir eru svo notaður til að þjálfa presta til að skrapa saman erfðaskrám svo það megi viðhalda auðvaldi kirkjunar sem er eiginlega það eina vald sem eftir er í þessari vesælu stofnun.
Eftir örfáar kynslóðir mun þetta þjóðfélagsskrýmsli líða undir lok. Saga hennar mun gleymast nema í hugum grúskara og sagnfræðinga. Þetta mál sem sem dómarar Vestfjarða ógiltu er ekkert einsdæmi. Samt er oftast ekkert rannsakað hvort svik kirkjunar eins og venjulega hafi verið þarna að verki.
Prestar eru ómeðvitaðir um hvað þeir eru að gera eins og venjulega. Þeir eru heilagir sem stundum er kallaður heilaþvottur af þeim sjálfum, sérstaklega þegar þeir tala um óvini sýna í öðrum kristnum söfnuðum.
Alla vega var enn einum glæp afstýrt og fólk þarf að vera vakandi yfir þessum hrægömmum og útsendurum kirkjunar þegar þeir reikna út hver sé að deyja og hver ekki. Líklegast hefði maðurinn sem sá um þennan mann árum saman ekki fengið neitt frá kirkjunni.
Það eru svo margar svona sögur til í landinu og hafa menn fengið að skýla sér á bakvið "heilaga ritningu" við þessa yðju sína. Vonandi verður þessi dómur til eftirbreytni í framtíðinni fyrir svipuð mál ...
|
Erfðaskrá ógilt með dómi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 18.1.2012 | 15:59 (breytt kl. 15:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skýrslum og útreikningum af þessu tagi er bara stungið undir stól með þeigjandi samkomulagi flestra ef ekki allra sem hlut eiga að máli. Svo fer pólitíkin um leyndarmáli í gang. Svona eru skattar notaðir aftur og aftur.
Leikritið sem gengur út á að friða almenning (skrílinn) fer líka í gang. Reynt er að ljúg eins lítið eins og hægt er að komast af með, enn lekur þetta til blaða þá fer hver að hreinsa í kringum sig. Enhver verður að taka á sig skellinn og má er bara að leita að einhverjum sem má fórna fyrir málstaðinn.
Enn menn sem ráða skilja ekki það einfalda í öllu saman. Hverjum heilvita manni dettur í hug að styðja svona endemis bull prójekt yfirleitt? Því ekki að nota Ríkisábyrgð í eitthvað vitlegra enn að grafa holu í gegnum fjall?
Samgöngumálaráðherra og allir sem bara fá þá flugu í höfuðið að velta þessu rugli fyrir sér sem möguleika eru haldfnir sama vandamáli. Prójektið er svo stórt og lobbyistarnir svo klárir að tala fyrir þessu prójekti að menn bakka fyrir því.
Menn sem eru með það sem atvinnu að skilja í sundur rugl og alvöru prójekt á Íslandi standa sig ekki. Menn kunna greiilega ekki að lesa neitt þegar málin fara yfir ákveðna stærð...ömurlegt að sjá hvað Ríkisstjórn Íslands er mönnuð af miklum aumingjum og rolum...en kanski rætist úr þessu og öllu prójektinu verður ekki bara stungið undir stól.
Heldur stungið þar sem það á heima, í ruslafötuna.
|
Skýrslu stungið undir stól |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bækur | 13.1.2012 | 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
vinir mínir
bloggarar
Bloggvinir
-
anitabjork
-
annana
-
arabina
-
arikuld
-
arncarol
-
asdisran
-
baldher
-
beggipopp
-
birgitta
-
braxi
-
brylli
-
bryndiseva
-
bylgjahaf
-
cigar
-
coke
-
dansige
-
daystar
-
diesel
-
disdis
-
doggpals
-
don
-
doritaxi
-
eeelle
-
egill75
-
ews
-
fanneyunnur
-
felagantirasista
-
fiskurfiskur
-
forvitin
-
fridust
-
fsfi
-
gattin
-
gelin
-
gesturgudjonsson
-
glacier
-
glamor
-
godinn
-
gudbjornj
-
gudrunmagnea
-
gullvagninn
-
gustichef
-
gutti
-
hallarut
-
halldorjonsson
-
hallkri
-
hallurmagg
-
halo
-
hehau
-
heidarbaer
-
heidathord
-
heiddal
-
heidihelga
-
hjaltig
-
hlini
-
holmdish
-
hugdettan
-
ingabaldurs
-
inhauth
-
jari
-
jenni-1001
-
jensgud
-
johanneseggertsson
-
joiragnars
-
jonaa
-
jonarnarr
-
jonsullenberger
-
jp
-
juliusbearsson
-
karlol
-
katlaa
-
kiddip
-
kisabella
-
kokkurinn
-
kolbrunb
-
kolladogg
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kristjans
-
kuriguri
-
kvotasvindl
-
landfari
-
maggadora
-
malacai
-
mammann
-
melrakkinn
-
minnhugur
-
nanna
-
natturbarn
-
neytendatalsmadur
-
obama
-
offari
-
olafur-thor
-
olafurfa
-
olofdebont
-
omarbjarki
-
omargeirsson
-
ommi
-
pallblondal
-
pallvil
-
palmig
-
photo
-
polites
-
proletariat
-
rafdrottinn
-
reykur
-
ringarinn
-
rlord
-
robertb
-
rosaadalsteinsdottir
-
runarsv
-
sabroe
-
saemi7
-
seinars
-
siggith
-
sigurdur1963
-
sigurdursig
-
sigurjonth
-
skagstrendingur
-
skari60
-
skattborgari
-
skessa
-
skjolid
-
smali
-
snorrima
-
softone
-
straitjacket
-
svanurg
-
svarthamar
-
svavaralfred
-
tara
-
taraji
-
tbs
-
theodorn
-
tilfinningar
-
tjaldurinn
-
tolliagustar
-
truryni
-
tungirtankar
-
ulli
-
unns
-
vala
-
valgeirskagfjord
-
veffari
-
vefritid
-
veravakandi
-
vest1
-
vestskafttenor
-
vga
-
villialli
-
vinaminni
-
zeriaph
-
zumann
-
einar77
-
prakkarinn
-
leifurl
-
vey
-
ansigu
-
gunnargunn
-
naflaskodun
-
elismar
-
thjodarheidur
-
shhalldor
-
kvak
-
flinston
-
beggo3
-
beggas
-
ameliafanney
-
haugur
-
helgigunnars
-
kht
-
fiski
-
maggi-phil
-
olafurjonsson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 6
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 252
- Frá upphafi: 34918
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 156
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar












